DSC00349-2.jpg
DSC04959.jpg
DSC00349-2.jpg

Fyrir hópa


SCROLL DOWN

Fyrir hópa


Vinsamlegast sendið fyrirspurnir á austurindia@austurindia.is.


Indlandsför

Fyrir tvo eða fleiri.

Matreiðslumeistarar okkar hafa útbúið matseðil sem samanstendur af réttum úr hinum ýmsu landshlutum Indlands - það besta sem við höfum upp á að bjóða. Réttirnir eru bornir fram fyrir allt borðið, minnst tvo eða fleiri. Aðlaga má seðilinn til að koma til móts við fæðuóþol eða ofnæmi.

Sjö réttir - 12.990 kr. á mann

Hópmatseðlar

Fyrir átta eða fleiri.

# 1

- - -

Einn lambaréttur

Einn kjúklingaréttur

Einn grænmetisréttur

- - -

Meðlæti er blandað naanbrauð, raitha og basmati hrísgrjón.

8.190 kr. á mann

# 2

Forréttur eða eftirréttur

Einn lambaréttur

Einn kjúklingaréttur

Einn grænmetisréttur

- - -

Meðlæti er blandað naanbrauð, raitha og basmati hrísgrjón.

8.590 kr. á mann

# 3

Forréttur

Einn lambaréttur

Einn kjúklingaréttur

Einn grænmetisréttur

Eftirréttur

Meðlæti er blandað naanbrauð, raitha og basmati hrísgrjón.

8.990 kr á mann

DSC04959.jpg

Veisluþjónusta


Veisluþjónusta



Austur-Indíafjelagið nýtur algjörrar sérstöðu í veisluþjónustu. Við aðstoðum við skipulag, val á matseðli og hvernig hægt er að mynda alveg einstaka stemmingu svo að veislan gangi fullkomlega upp. Til að auðvelda val á matseðli í stærri veislur (25 eða fleiri) þá bjóðum við upp á smökkun á miklu úrvali rétta viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Við bjóðum upp á einkarými fyrir allt að 30 manns.

Veisluþjónusta okkar er fjölbreytt og reynsla Austur-Indíafjelagsins er mikil. Við höfum um árabil tekið þátt í undirbúningi alls kyns viðburða og tökum reglulega að okkur bæði flóknar og einfaldar veislur. Við höfum reitt fram mat fyrir litla sem stóra hópa, þar á meðal fjölmörg brúðkaup, afmæli, útskriftarveislur, fyrirtækjaveislur og meira að segja veglega, opinbera veislu Indlandsforseta.

Veitingarnar sem við bjóðum geta hentað í standandi kokteilpartý, margrétta borðhald og allt þeirra á milli. Því getum við uppfyllt flestar óskir. Hægt er að sækja matinn til okkar eða fá matreiðslumeistara okkar og þjónustufólk með veislu í farteskinu.

Við munum glöð verða við óskum þínum varðandi val á matseðli og þjónustu hvort sem það er í heimahúsi, á vinnustað, í veislusal eða á veitingahúsi okkar að Hverfisgötu 56.