Árið 1994 ákváðum við að nýta reynslu okkar úr veitingahúsarekstri
og brennandi áhuga á matargerð og færa dásemdir indverska eldhússins
til Íslendinga. Markmið okkar var í senn einfalt og einstætt: Að blanda
saman fersku og framandi kryddi Indlands við besta fáanlegt íslenskt
hráefni og bera það á borð af alúð í vingjarnlegu og þægilegu veitingahúsi.
Áskorunin sem beið okkar var mun meiri en við höfðum gert okkur grein
fyrir. Innflutningur á kryddi var t.d. ekki auðveldur og hvað þá að útvega
atvinnuleyfi fyrir indverskt fagfólk sem við þurftum á að halda. Með
þrautseigju og einlægum ásetningi tókst þetta og við fengum loks fyrsta
matreiðslumeistarann okkar frá Suður-Indlandi. Þökk sé góðu umtali óx
okkur síðan ásmegin og veitingahúsarýnar fóru að veita þessu nýja og
framandi veitingahúsi athygli.
Austur-Indíafjelagið varð fljótt og örugglega reglubundinn áfangastaður
matgæðinga og hefur æ síðan verið samnefnari þess besta úr indverskri
matarhefð á Íslandi. Þar liggja rætur velgengninnar sem staðurinn hefur
notið.
Með þakklæti og vinarkveðjum,
Chandrika og Gunnar Gunnarsson