Veisluþjónusta okkar er fjölbreytt og reynsla
Austur-Indíafjelagsins er mikil. Við höfum galdrað
fram mat fyrir litla hópa og allt upp í stóra opinbera
veislu Indlandsforseta sem haldin var fyrir íslenska
stjórnmálaleiðtoga og viðskiptajöfra. Á hverju ári önnumst
við veislur fyrir fjölda viðburða, s.s. brúðkaup, afmæli,
útskriftir, fyrirtækjaveislur og fleira.
Við sinnum jafnt flóknum veislum sem einföldum.
Veitingar eru allt frá léttum veitingum í kokteilpartýi og
upp í margrétta borðhald.
Við getum uppfyllt óskir þínar um hvers konar þjónustu.
Allt eftir því hvað á við. Það er hægt að sækja matinn til
okkar, fá matreiðslumeistara og þjónustufólk með veislu
í farteskinu eða bara hvað sem er sem hentar þínum
aðstæðum.
Við svörum óskum þínum varðandi val á matseðli og
þjónustu. Gildir þá einu hvort um er að ræða viðburð í
veitingahúsi okkar, á heimili þínu, á vinnustað, í veislusal
eða annars staðar þar sem halda skal veislu.
Okkar sérstaða
Austur-Indíafjelagið nýtur algjörrar sérstöðu í
veisluþjónustu. Við aðstoðum við skipulag, val á matseðli
og hvernig hægt er að mynda alveg einstaka stemmingu
svo að veislan gangi fullkomlega upp. Til að auðvelda val
á matseðli í stærri veislur (25 eða fleiri) þá bjóðum við
upp á smökkun á miklu úrvali rétta viðskiptavinum að
kostnaðarlausu.